McLaren Fallout Remover (Deironiser) er hreinsiefni sem virkar sem járnhreinsir, hreinsar mjög vel erfið óhreinindi, skordýraleifar og járnleifar (agnir og ryk) sem koma t.d. úr bremsum bíla o.fl. og leggjast á lakkið og geta skemmt út frá sér ef þær fá að liggja þar.
Fallout Remover breytir lit og verður rautt þegar það kemst í snertingu við málmagnir á yfirborði lakksins svo að þú sérð hvar þær eru og getur fjarlægt þær auðveldlega.
- Hraðvirkt og auðvelt í notkun
- Leysir hratt og vel upp óhreinindi
- Tilbúið til notkunar og öruggt til notkunar á glæru
- Breytir lit og verður rautt þegar það kemst í snertingu við málmagnir
- Sérstaklega hentugt til að þrífa yfirborðið vel áður en keramik efni eða vaxefni eru borin á lakkið
Notkunarleiðbeiningar
- Það er mjög gott að þrífa bílinn með McLaren Snow Foam og hreinsa með vatni.
- Úðið McLaren Fallout hreinsiefninu á yfirborðið sem á að þrífa, þú getur notað svamp til að dreifa betur úr því ef þess gerist þörf.
- Leyfðu efninu að sitja á lakkinu í 2-5 mínútur. Þú sérð þegar efnið breytir lit og verður rauðleitt þegar það byrjar að brjóta niður óhreinindin.
- Hreinsið af með vatni.
- Notið ekki í beinu sólarljósi og látið ekki fullþorna.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.