McLaren Paste Wax Kit er tveggja þrepa kerfi sem er hannað til að veita ótrúlega djúpan gljáa ásamt því að verja lakkið vel og gera það silkimjúkt viðkomu.
Skref 1 er Cleaner Wax, hreinsivax sem er sett á hreint og þurrt lakkið. Cleaner Wax hreinsiefnið hjálpar þér við að fjarlægja óhreinindi og leifar sem sitja í lakkinu og að öðrum kosti stytta endinguna á vaxinu og undirbúa lakkið fyrir skref 2.
Skref 2 er sérstök blanda af carnauba vaxi og búflugnavaxi og kókosolíu sem veiti þér mjög endingargóðan gljáa og ver lakkið. Það er hægt að notast eingöngu við skref 2 en við mælum með notkun á báðum efnum til að fá fullkominn gljáa.
- Tveggja þrepa formúla.
- Bónpúði til að bera efnið á fylgir með í settinu.
- Veitir lakkinu silkmjúka áferð og ver lakkið.
- Veitir langvarandi háglans áferð.
Notkunarleiðbeiningar
- Gakktu úr skugga um að bíllinn sé hreinn og yfirborðið sé laust við lausleg óhreinindi
- Notaðu bónpúðann til að setja McLaren Cleaner Wax og berðu á í hringlaga hreyfingu og láttu hringina skarast svo að allt yfirborðið fái jafnt af efni.
- Nuddaðu með hreinum örtrefjaklút til að fjarlægja umfram leifar af vaxinu.
- Áður en þú setur Finishing Wax á yfirborðið, gakktu úr skugga um að það sé ekkert ryk eða óhreinindi á lakkinu svo þú festir þau ekki í vaxinu.
- Berðu Finishing Wax jafnt á allan flötinn og berðu á í hringlaga hreyfingu og láttu hringina skarast svo að allt yfirborðið fái jafnt af efni.
- Nuddið með hreinum örtrefjaklút þar til að gljáinn er orðinn góður og vel sjáanlegur.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.