Autosmart Cherry Glaze er bílabón sem er svokallað hraðbón. Cherry Glaze er auðvelt að bera á yfirborðið það þornar mjög hratt og það er mjög auðvelt að þurrka það af yfirborðsfletinum. Það er mildur kirsuberjailmur af bóninu. Hentar mjög vel t.d. þegar verið er að sýna ökutæki hvort sem er á bílasýningum eða í sýningarsal bílaumboða og á bílasökum. Autosmart Cherry Glaze inniheldur ekki sílikon.
Leiðbeiningar
Hristið brúsann mjög vel, notið úðabrúsa eða úðakút og úðið jafnt á yfirborðið, notið hreinan bónklút eða bónsvamp. Það er líka hægt að bera á með því að hella beint í bónklút / bónsvamp. Leyfið efninu að þorna, það verður skýjað þegar það þornar. Þurrkið af með hreinum klút / örtrefjaklút og nuddið í hringlaga hreyfingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.