Autosmart Snowfoam Pro er bílasápa / kvoðusápa. Snowfoam Pro er pH hlutlaus og hefur því ekki áhrif eða fjarlægir bílabón og aðra lakkvörn á bílnum. Hentar til notkunar með kvoðubúnaði á háþrýstidælum heima sem og í búnaði sem fagmenn nota. Autosmart Snowfoam Pro inniheldur sérstök efni sem mynda litlar loftbólur í kvoðunni og liggur þá betur á yfirborðsfletinum og hreinsar þar af leiðandi betur. Snowfoam Pro inniheldur ekki sílikon.
Leiðbeiningar
Notið aldrei í beinu sólarljósi, gakktu úr skugga um að yfirborðsflöturinn sé kaldur viðkomu.
Best er að skola öll lausleg óhreinindi af áður en Snowfoam Pro er notað.
Notið kvoðubúnað – Fyllið flöskuna af Snowfoam Pro og aðlagið blöndunina á kvoðubúnaði. Ef að það er ekki stillibúnaður á kvoðubúnaði blandið Snowfoam Pro 20:1 upp í 80:1 (Vatn : Snowfoam Pro), sterkari blanda gefur þykkari kvoðu sem hefur betri viðloðun á yfirborðsfletinum, þynnri blanda hentar vel þegar þarf að þrífa hratt.
Forþvottur: Setjið þykkt lag af kvoðu á bílinn, látið standa í allt að 10 mínútur og hreinsið svo með vatni. Látið efnið ekki þorna á yfirborði bílsins.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.