Autosmart Floorsmart Cleanse (þyknni) er lágfreyðandi gólfsápa sem er sérstaklega ætluð í gólfhreinsivélar en hana má þó nota einnig með því að úða henni beint á gólffleti og þrífa svo. Hentar á mjög erfið óhreinindi og til hversdags notkunar. Vinnur mjög vel á fitu og smurfeiti og allra handa óhreinindum sem koma af almennum umgangi. Inniheldur ekki sílikon.
Leiðbeiningar – Þynnið Floorsmart Cleanse á móti vatni
- Erfið óhreinindi: 1:10 upp í 1:100 fyrir hversdags þrif.
- Setjið blönduna á gólfhreinsivél eða í úðakút til að úða yfir gólfið.
- Nuddið þar sem þess gerist þörf og hreinsið með hreinu vatni.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.