K2 Diesel Go! er mjög öflugur innspýtingahreinsir sem ætlaður er til notkunar á dísilvélar með háþrýstu innspýtingakerfi. Gott er að nota K2 Diesel Go! á 10.000 km. fresti til að eyða útfellingum í eldsneytiskerfinu. Hentar fyrir allar gerðir dísilvéla og er öruggt til notkunar á vélar sem eru útbúnar DPF filterum.
Leiðbeiningar
Áður en fyllt er á eldsneytistankinn, helltu öllu innihaldi brúsans í eldsneytistankinn. 1 brúsi sem er 250ml dugar til íblöndunar í 50 – 70 lítra af dísilolíu.