Roker er súr hreinsilögur sem ætlaður er til að hreinsa kalk-útfellingar, Roker kemur óblandað og er ætlað til blöndunar. Hentar á blöndunartæki, baðkör, sturtuklefa, gólffleti og fleira.
Leiðbeiningar:
- Blandið niður 1:10 (1 af Roker á móti 10 hlutum vatns).
- Berið á það yfirborð sem á að hreinsa annaðhvort með úðakút/úðabrúsa eða svamp/klút.
- Hreinsið með miklu af vatni.
- ATHUGIÐ
- Látið efnið ekki þorna á yfirborðsfletinum.
- Best er að prófa efnið á lítt sjáanlegu svæði til að sjá hvernig flöturinn bregst við því.