Solar flare lyktareyðir Lyktareyðandi efni í úðabrúsa sem hentar vel á alla erfiða og óæskilega lykt en skilur um leið eftir sig léttan og frísklegan ilm. Solar Flare lyktareyðirinn vinnur á ólykt sem kann að myndast í geymslum, skápum, teppum, tjöldum, salernum, ruslarennum, ruslageymslum, bílum og fl. staði. Solar Flare hentar einnig mjög vel til að losna við reykingalykt og aðra ólykt úr bílum.
Notkunarleiðbeiningar: Úðið beint á staðinn sem ólyktin er, úðið í litlum skömmtum. Við notkun á tauefni s.s. teppi, áklæði og fatnað prófið alltaf á lítt sjáanlegum stað áður en úðað er yfir tauefnið.
ATH! Notist ekki beint á póleraða og lakkaða fleti.
Ítarlegri upplýsingar í fylgiskjölum