Motip Hollow Section Wax er glærleitt (skýjað) holrúmsvax sem veitir öfluga ryð og tæringarvörn í ýmsum holrýmum á bílum og tækjum s.s. innanvert í hurðum, sílsum, karma, horn og kverkar svo eitthvað sé nefnt. Hollow Section Wax efnið smýgur vel á milli flata og það er með mjög góða viðloðun og lekur minna en margar aðrar gerðir af holrúmsvaxi.
Notkunarleiðbeiningar
- Best er að hafa spreybrúsann við herbergishita, efnið virkar best við +10°C upp að +25°C.
- Hristið brúsann mjög vel í 2 mínútur fyrir notkun.
- Úðið vaxinu vel inn í þau rými sem á að ryðverja.
- Hreinsið stútinn á brúsanum með því að snúa honum á hvolf og úða úr honum í 5 sekúndur.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.