Haynes® Lubri-Film Plus er sérstaklega hönnuð smurfeiti fyrir matvælaiðnaðinn, hún er álagsþolin og mjög endingargóð og minnkar slit þar sem málmfletir eru að snertast. Lubri-Film Plus er matvælavottuð NSF-H1 og er ætluð til notkunar í hin ýmsu tæki í matvælavinnslu þar sem möguleiki er fyrir hendi á snertingu við matvæli, til dæmis:
- Kaffivélar (O-hringi, pakkningar, og þéttingar á stimplum)
- Bjórdælur (O-hringi, pakkningar, og þéttingar)
- Ostagerð
- Skurðarvélar
- Ísvélar
- Pastavélar
- Matvinnsluvélar og mixara
- Sjúkrarúm
og margar fleiri aðstæður þar sem þörf er á viðurkenndri lyktarlausri smurfeiti.
Haynes® Lubri-Film Plus lekur ekki, þornar ekki, klístrast ekki og verður ekki gúmmíkennd. Þægilegt er að þrífa umframfeiti í burtu eftir smurningu. Haynes® Lubri-Film Plus er bragðlaus og lyktarlaus.