K2 Metal Bond er tveggja þátta lím fyrir málma, límið er gríðarlega sterkt og öflugt. Metal Bond má bora, snitta og slípa eftir að það hefur harðnað. Metal Bond er einnig efnaþolið.
Leiðbeiningar:
Hreinsið / fituhreinsið mjög vel þá fleti sem á að líma. Setjið jafn mikið af A+B efnum og blandið vel saman, gott er að notast við hart spjald til að blanda efnin saman. Blandið hratt og vel þar til sami litur er á allri blöndunni. Setjið blönduna á flötinn sem á að líma/laga og þrýstið vel saman, fjarlægið allt umframefni áður en það harðnar.